Gunnar Nelson var hann sjálfur á blaðamannafundinum eftir bardagann í gær. Hann fékk tvær spurningar á fundinum og svaraði þeim ekki í löngu máli og vakti það mikla lukku. Myndband af svörum Gunnars má sjá hér fyrir neðan.
Spurður hvaða þýðingu það hafði fyrir hann að sigra bardaga í fyrsta skipti sem hann berst í Las Vegas sagði Gunnar að þetta hafi verið draumur hans. „Ég kann að meta allt við það, skilurðu. Frábært.“
Stutt tilsvör Gunnars á blaðamannafundinum vöktu talsverða kátínu. Sérstaklega hjá Dana White, forseta UFC, sem sagði að þegar Gunnar fær hljóðnemann er enginn að búast við stórum yfirlýsingum.
„Hann segir þér nákvæmlega það sem honum finnst og ekkert annað. Helvíti heillandi. Ég elska þetta.“
Sjáðu svör Gunnars í þessu myndbandi.
Hér má sjá allan fundinn. Conor McGregor mætir á fundinn þegar 46 mínútur eru liðnar og þá fá aðrir ekkert svo margar spurningar.