Hvaða pylsu er best að setja á grillið? „Þetta er beikon! Uppistaða alls lífs á jörðinni“

Sumarið er loksins komið í alvöru og sólin hefur látið finna vel fyrir sér víða um land undanfarna daga. Þá er aðeins eitt til bragðs að taka: Að grilla pylsur. En hvaða pylsur? Úrvalið er of mikið.

Grillfeðurnir voru að sjálfsögðu til í að kynda upp í grillinu og smakka nokkrar pylsur sem fást í næsta stórmarkaði. Elísabet Inga, útsendari Nútímans, sá til þess að allt fór vel fram. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Sjá einnig: Hvernig er best að grilla svínarif? Grillfeðurnir prófuðu þrjár aðferðir

Grillfeðurnir eru þeir Hjalti Vignis og Arnar Sigurðsson sem stýra Facebook-hópnum Grillsamfélag Íslands. Hópurinn er hugsaður sem vettvangur fyrir ástríðufulla grillara til að deila öllu því sem tengist grillmenningu, hvort sem um ræðir gas, kol eða reyk, uppskriftir, aðferðir og það sem hverjum dettur í hug hverju sinni. Samfélagið stækkar stöðugt og í dag eru meðlimirnir rúmlega þrjú þúsund.

Auglýsing

læk

Instagram