Jessie J heldur tónleika í Laugardalshöll

Breska tónlistarkonan og söngdívan Jessie J heldur stórtónleika í Laugardalshöllinni þriðjudaginn 15. september. Hún er best þekkt fyrir að flytja risasmelli á borð Price Tag, Bang Bang og Domino. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Tónleikahaldarinn Guðbjartur Finnbjörnsson segir í samtali við Fréttablaðið að hún sé frábær á sviði.

Hlutur kvenna hefur ekki verið mikill í erlendu tónleikahaldi hér á landi undanfarin misseri og því finnst mér það líka sérlega frábært að fá hana til landsins. Hún er líka frábær karakter og rakaði meira að segja af sér hárið fyrir nokkrum árum til að styrkja gott málefni.

Auglýsing

Jessie J kom sendi frá sér plötuna Who You Are árið 2011. Sex lög af plötunni komust á topp tíu í Bretlandi en hún er fyrsta konan til að ná þeim árangri.

Hér má sjá myndband Jessie J við lagið Bang Bang sem hún flytur ásamt Ariönu Grande og Nicki Minaj. Búið er að horfa oftar en 400 milljón sinnum á myndbandið á Youtube.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing