Josh Blue með uppistand á Íslandi

Grínistinn Josh Blue er væntanlegur til landsins á vegum fyrirtækisins Komedy og verður með uppistand í Háskólabíói 4. september næstkomandi. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Blue stóð uppi sem sigurvegari í raunveruleikaþættinum Last Comic Standing á sjónvarpsstöðinni NBC árið 2006.

Auglýsing

Hann segist hafa tekið þátt í þættinum til að vekja athygli á því að fatlað fólk getur haft áhrif en hann er með CP hreyfihömlun og gerir mikið grín að sjálfum sér og viðhorfi fólks í uppistandinu.

Blue hefur undanfarið ferðast um heiminn og skemmt fólki og hefur meðal annars komið fram í þætti Ellenar Degeneres ásamt því að gefa út uppistandið Sticky Change á Netflix. Miði.is.

Miðasala á uppistandið hefst eftir verslunarmannahelgi á

https://youtu.be/Gr6lrTO2-TQ

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing