Söngvarinn Matthías Matthíasson, Matti Matt, varð fertugur á dögunum.
Vinir hans hjá RIGG viðburðum tóku sig til og skelltu saman tónlistarmyndbandi handa kappanum. Þau fóru með þetta alla leið og tóku upp eigin útgáfu af stórsmellinum We Are the World. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.
Á meðal þeirra sem koma fram í myndbandinu eru Friðrik Ómar, Margrét Eir, Stebbi Jak, Jógvan, Erna Hrönn og Hreimur. Húmorinn er augljóslega í fyrsta sæti og útkoman stórskemmtileg.
Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.
Verð að deila með ykkur vídeói sem RIGG – viðburðir útbjó í tilefni að því að ég er víst að eldast hratt og örugglega.Takk elsku vinir fyrir að fagna með mér 40 árunum 🙂
Posted by Matthías Matthíasson on Monday, September 28, 2015