Eftir að fjölmiðlar fluttu fréttir af því milljarðaerfinginn Wyatt Koch hafi kært fyrrverandi unnustu sína til að endurheimta rándýran trúlofunahring sem hann gaf henni þegar allt lék í lyndi skaut ansi skemmtilegt myndband upp kollinum. Þú verður að horfa á myndbandið hér fyrir neðan en leyfðu okkur fyrst að segja þér frá Wyatt Koch.
Hann er sonur Bill Koch sem er umdeildur milljarðamæringur metinn á 1,65 milljarða dali. Wyatt keypti trúlofunarhringinn handa þáverandi unnustu sinni á 180 þúsund dali og vill fá hann aftur ásamt 15 þúsund dölum í miskabætur.
En myndbandið kemur þessu ekki við. Wyatt er nefnilega tískuhönnuður og hannar ótrúlegar skyrtur. Hann segir frá þessari ástríðu í myndbandinu sem hefur farið víða á internetinu undanfarna daga.
Hér má sjá dæmi um hönnun frá Wyatt
Og hér má sjá listamanninn að störfum
Horfðu á þetta stórkostlega myndband hér fyrir neðan
can’t look away pic.twitter.com/J88UwJ8eY2
— Adam H. Johnson (@adamjohnsonNYC) December 20, 2017
