Myndband: Brutu Vinstri græn lög með sýningu myndbands þar sem Katrín er með áfengi og vindil?

Svo virðist sem Vinstri græn hafi með birtingu auglýsinga Ragnars Kjartanssons listamanns fyrir flokkinn gerst brotleg bæði við áfengis- og tóbaksvarnarlög. Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan.

Þetta kemur fram á Vísi.

Í einni auglýsingunni eru þau Ragnar og Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, við bar þar sem hann blandar handa þeim kokteil sem hann líkir við hvernig Ísland er samsett. Í lokin eru þau bæði með vindil við hönd og skála. Ragnar reykir vindilinn en Katrín ekki.

Í frétt Vísis kemur fram að málið hafi verið borið undir löglærða og sýnist þeim að um ótvírætt brot sé að ræða.

Auglýsing

læk

Instagram