Það skiptir ekki máli hvaðan þú kemur, hversu gömul eða gamall þú ert eða í hvernig formi þú ert; þú ert svalur þegar þú dansar Bhangra! Þetta skrifaði Anand Mahindra með myndbandi sem hann deildi á Twitter en þar má sjá þrjár konur, sem virðast við fyrstu sýn vera þrír ellilífeyrisþegar, dansa þjóðdans í verslunarmiðstöð.
Myndbandið vakti mikla athygli og hefur verið deilt 2.200 sinnum á tveimur dögum.
This should perk up your morning. Proves that no matter where you’re from,your age or your shape,you’ll look cool when you get down&Bhangra! pic.twitter.com/Hdw8AvhzoA
— anand mahindra (@anandmahindra) March 16, 2017
Ekki er þó allt sem sýnist. „Ömmurnar“ eru konur á þrítugs-, fertugs- og fimmtugsaldri sem hafa komið fram saman í tæplega tuttugu ár.