Nýgiftu hjónin Helga Magnúsdóttir og Bergur Þorri Benjamínsson laumuðu kossi inn í kvöldfréttirnar á RÚV í kvöld. Myndband af kossinum má sjá hér fyrir neðan.
Helga og Bergur giftu sig í gær og í morgun kom Helga eiginmanni sínum á óvart með því að bjóða honum upp á Esju.
Þau eru bæði bundin við hjólastól en starfsfólk Öryggismiðstöðvarinnar, handboltafólk úr Fram og fleiri sjálfboðaliðar hjálpuðu þeim á toppinn í sérútbúnum hjólastólum.
Þegar fréttamaður RÚV lauk fréttinni laumuðu þau svo kossinum að. Ástin!