Reykjavíkurdætur spörkuðu Airwaves af stað með látum, gáfu skít í brenglaða líkamsímynd kvenna

Reykjavíkurdætur hófu Iceland Airwaves-hátíðina með látum á Nasa í gær og gáfu skít í brenglaða líkamsímynd kvenna með því að vera berskjaldaðar á sviðinu í samskonar fötum úr Lífstykkjabúðinni. Sjáðu brot úr tónleikunum í spilaranum hér fyrir ofan.

Reykjavíkurdóttirin Sigurlaug Sara segir í samtali við Nútímann að klæðaburður hljómsveitarinnar sé oft tekinn fyrir eftir tónleika.

Fólk talar um að við séum áhugaverðar af því að við erum litríkar eða með mikið af glingri — að við séum áhugaverðar vegna þess að það sé gaman að horfa á skrautið á sviðinu. Við vorum bara orðnar dálítið þreyttar á því.

Hún segir að Reykjavíkurdætur fari á svið til að segja eitthvað. „Við förum á sviðið til þess að hafa rödd eða koma einhverju á framfæri og spila tónlist,“ segir hún.

„Þess vegna langaði okkur að sýna að við erum miklu meira en gullkeðjur og litríkur klæðnaður. Við vildum losa okkur við allt slíkt og vera alveg hlutlausar. Þannig kom hugmyndin. Við vorum algjörlega berskjaldaðar á sviðinu og í raun í frekar vulnerable stöðu. En við höfum bara ekkert að fela. Við erum ólíkar og alls konar og við stöndum fyrir meira en bara glingur og glamúr.“

Spurð út í viðbrögðin segir Sara að þau hafi verið mjög góð og fólk virðist skilja pælinguna.

„Við höfum tekið eftir færslum þar sem stelpur og konur segja að þetta sé hvetjandi. Sem er frábært,“ segir hún.

„Við erum náttúrulega líka að gefa skít í brenglaða líkamsímynd kvenna. Við erum ólíkar í vexti og það var alveg erfitt að vera í svona revealing fötum en við ákváðum að láta ekki kröfur samfélagsins um einhverja ímyndaða fullkomnun stoppa okkur og það er frábært að það komi sér líka til skila.“

Auglýsing

læk

Instagram