today-is-a-good-day

Sigga Soffía hannar flugeldasýningu fyrir tvær milljónir manna: „Fyrir mig að gera 10 sekúndur tekur heilan dag“

Danshöfundurinn Sigríður Soffía Níelsdóttir, hefur undanfarin ár hannað flugeldasýningar. Hún vinnur þessa dagana að hönnun sýningar í samstarfi við spænska fyritækið, Igual Pirotecnica.

Sýningin verður á listahátíðinni, La Mercé sem haldin verður í lok þessa mánaðar. Nútíminn kíkti á Siggu sem er spennt að takast á við þetta verkefni.

Þetta er stærsta verkefni Siggu til þessa en hún hannaði flugeldasýningu menningarnætur árin 2013, 2014 og 2015. Nánar um sýninguna má lesa hér.

„Hérna á Íslandi eru bomburnar 6 tommur en ég er núna að komast í 8, 9 og 10 tommu bombur,“ segir Sigga.

Auglýsing

læk

Instagram