Páll Óskar hefur sent frá sér lagið Líttu upp í ljós. Myndband við lagið má sjá hér fyrir neðan.
Sjá einnig: Páll Óskar gefur nýju lögin sín á internetinu
Líttu upp í ljós er danslag af stærri gerðinni og fyrsta lagið sem Páll Óskar gefur út í samvinnu við Jakob Reyni Jakobsson og Bjarka Hallbergsson, sem mynda tónlistarteymið DUSK.
Hér er nýja Pallalagið. Gjörið svo vel.
Páll Óskar sagði í viðtali í mars að eins og hlutirnir eru í dag sé ekki góð hugmynd að gefa lögin út á plötu.
„Mér sýnist fólk sem eyddi peningunum sínum í geisladiska, dvd og plötur sé að eyða þeim í tónleika og leikhús,“ sagði hann.
Eftir að plötusala hrundi á Íslandi hafa aldrei verið haldnir fleiri tónleikar. Áður fyrr héldu tónlistarmenn tónleika til að selja plötur en í dag er tónlist gefin út til að selja miða á tónleika.
Páll Óskar sagði að þjónusta á borð við þá sem Youtube, Spotify og jafnvel Pirate Bay veita sé blessun frekar en bölvun.
„Nýir listamenn, sem áttu ekki séns í „gamla kerfinu“ sem var stýrt af plötufyrirtækjunum, eiga betri möguleika í dag vegna þess að tónlistin þeirra fær betri dreifingu. Ég er að uppgvöta nýja og mjög spennandi listamenn. Þannig að mér finnst þetta frábær og spennandi þróun fyrir tónlist.“