Sjáðu nýja stiklu úr næstu Hollywood-mynd Baltasars Kormáks

Síðasta stiklan fyrir frumsýningu á kvikmyndinni Adrift, eftir Baltasar Kormák, var birt í dag. Myndin er byggð á sannsögulegum atburðum og verður frumsýnd á Íslandi 1. júní. Stiklan er alveg mögnuð en þú getur horft á hana í spilranum hér fyrir ofan.

Myndin er byggð á á sögu Tami Oldham og Richard Sharp sem ætluðu að sigla skútu frá Tahíti til San Diego árið 1983 og lentu í vægast sagt miklum hremmingum.

Leikkonan Shailene Woodley fer með aðalhlutverkið í Adrift og Baltasar sagði í samtali við Nútímann í fyrra að hún sé ofboðslega góð leikkona. „Ég hugsa hins vegar að hún sé frægari hjá unglingum en fullorðna fólkinu.“ sagði hann léttur.

Baráttan við náttúruöflin er áberandi í myndunum Everest og Djúpinu eftir Baltasar og ljóst er að hann verður við sama heygarðshornið í Adrift. „Ég hef bæði verið í fjallgöngu og siglingum og tengi því við þessar myndir. Ég hef gaman af því þegar einstaklingurinn þarf að mæta náttúrunni og þess vegna heilla svona myndir mig,“ sagði hann.

Auglýsing

læk

Instagram