Sjáðu Reykjavík og Ara Eldjárn í stiklunni fyrir grínþættina Documentary Now

Grínþáttaröðin Documentary Now verður frumsýnd á fimmtudaginn á sjónvarpsstöðinni IFC. Stiklu úr þáttaröðinni má sjá hér fyrir neðan. Einn þáttur var tekinn upp hér á landi.

Hópur bandarískra kvikmyndagerðarmanna kom til landsins í apríl og tók upp þátt með hópi íslenskra leikara. Ari Eldjárn, Saga Garðarsdóttir, Siggi Sigurjóns, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Nína Dögg Filippusdóttir og Þorsteinn Guðmundsson eru á meðal þeirra sem fengu hlutverk í þáttunum.

Auglýsing

Í stiklunni hér fyrir neðan má meðal annars sjá Ara Eldjárn í hlutverki sínu ásamt hópi fólks sem tók þátt í bæjarhátíð sem slegið var upp í Reykjavík í þættinum.

Bill Hader, Fred Armisen og Seth Meyers fara með aðalhlutverkin í þáttinum. Þeir eru þekktastir fyrir hlutverk sín í grínþáttunum Saturday Night Live en hafa einnig komið fram í kvikmyndum og þáttum á borð við Superbad, The Skeleton Twins, Portlandia ásamt því að Seth Meyers stýrir kvöldþættinum Late Night with Seth Meyers.

Lorne Michaels, framleiðandi Saturday Night Live, kemur að framleiðslu þáttanna.

Hér má sjá þátt í fullri lengd úr þáttaröðinni.

https://youtu.be/YyDcKINFugE

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing