Splunkunýr dúett með stórskemmtilegt myndband

Dúettinn Milkywhale hefur sent frá sér myndband við lagið Birds of Paradise. Milkywhale er nýtt verkefni Melkorku Sigríðar Magnúsdóttur og Árna Rúnars Hlöðverssonar en hann er einnig í hljómsveitinni FM Belfast.

Lagið er ansi hressandi. Myndbandið er úr smiðju Magnúsar Leifssonar, sem ber einnig ábyrgð á myndböndunum við lögin Brennum allt með Úlfi Úlfi, Glow með Retro Stefson og Strákarnir með Emmsjé Gauta.

Auglýsing

Horfðu á þetta ansi hressandi myndband hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing