Steindi sefar áhyggjur aðdáenda frægustu tíkar landsins: „Pulla er á lífi“

Tíkin Pulla er í hlutverki í myndbandinu við Þjóðhátíðarlag útvarpsþáttarins FM95Blö sem var frumsýnt í gær. Auðunn Blöndal borðar Pullu í myndbandinu og í lokin eru birt minningarorð um tíkina sem hefur farið á kostum á Snapchat með eiganda sínum, Steinda Jr.

Sjá einnig: Sjáðu myndbandið við Þjóðhátíðarlagið frá FM95Blö

Auglýsing

Einhverjir aðdáendur Pullu tóku minningarorðin alvarlega og höfðu samband við Steinda til að athuga hvort hún væri ekki örugglega á lífi. Steindi sefar þessar áhyggjur í samtali við Nútímann.

Pulla er á lífi. Ég er búinn að fá ógeðslega mikið af skilaboðum og hringingum um hvort Pulla sé ekki örugglega á lífi. Fólk hafði áhyggjur.

Steindi segir að hún sé búin að sjá myndbandið og sé að fíla það. Hann tekur þó fram að myndbandið vísi á margan hátt í raunveruleikann og að ef þeir félagar væru bjargarlausir uppi á fjalli myndi Auddi borða hana.

„Auddi hefur aldrei verið í Team Pulla. Hann þolir hana ekki,“ segir Steindi.

Pulla er franskur bolabítur og ekkert sérstaklega hlýðin að sögn Steinda. Hún var því mikið að spinna í myndbandinu. Þetta er ekki fyrsta hlutverk Pullu en hún hefur verið sidekick Eðlumannsins sem aðdáendur Steinda þekkja af Snapchat.

„Hún hafði mjög gaman að þessu,“ segir Steindi en bætir við að hundarnir í hverfinu þurfi að vara sig á stjörnustælunum í henni þar sem hún verður tveggja ára í ágúst og er því afar viðkvæmum aldri.

FM95Blö kemur fram á miðnæturtónleikum á föstudaginn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Hægt er að sækja lagið hér.

https://youtu.be/_JEPlbNoNV8

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing