Steiney rappaði með Úlfi Úlfi í beinni á RÚV

Hraðfréttakonan og Reykjavíkurdóttirin Steiney Skúladóttir stýrir Sumarmorgnum á Rás 2 ásamt Dodda litla á meðan Gunna Dís, Andri Freyr og Sóli Hólm eru í fríi.

Steiney og Doddi fengu Arnar úr Úlfi Úlfi í heimsókn í morgun þar sem hann kynnti útgáfutónleika hljómsveitarinnar, sem fara fram í Gamla bíói annað kvöld. Þess má geta að fatamerkið ULFR verður með Pop Up-markað á tónleikum.

Auglýsing

Sjá einnig: Steiney frelsaði geirvörtuna í Hraðfréttum

Þau fengu að sjálfsögðu Arnar til að taka lagið en þar sem það vantaði annan Úlfinn þá hljóp Steiney í skarðið og rappaði með honum lagið Tarantúlur.

Útkomuna má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing