Heimsmeistaramót íslenska hestsins fer fram í Herning í Danmörku 3. til 9. ágúst. Tónlistarmaðurinn Stony var fenginn til að útbúa myndband til að hita fyrir mótið. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
Sjá einnig: Allt sem þú vissir ekki um manninn á bakvið Gerðiþaðekki
Það verður að segjast að engum hefur tekist að gera hesta jafn spennandi fyrir fólk sem stundar ekki reiðmennsku.
Stony hefur sem kunnugt er komið víða við. Hann kom fram í alþjóðlegri herferð Pepsi, hefur gert tvö frábær lög fyrir Nútímann, Gerði það ekki og Hvar er kjarkurinn ásamt því að rappa í laginu No More með Glowie.
Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.