Þegar Óttarr Proppé gagnrýndi „Illmatic“

Í byrjun vikunnar (18. febrúar) rataði myndbandsútgáfa af fyrsta þætti hlaðvarps SKE á netið (sjá hér að neðan). Hlaðvarpsþátturinn sjálfur verður birtur á næstu dögum í fullri lengd.

Í fyrsta þættinum er platan Illmatic eftir bandaríska rapparann Nas tekin fyrir. Eins og fram kemur í þættinum gagnrýndi Óttarr Proppé, fyrrum heilbrigðisráðherra, plötuna árið 1994 fyrir tímaritið Eintak. Í dómnum gaf Óttarr tvívegis til kynna að Nas væri, í raun, ekki rappari í eintölu—heldur hópur rappara í fleirtölu. Þá fékk Illmatic aðeins eina stjörnu af fjórum mögulegum. Kom þessi gagnrýni ritstjórn SKE mjög á óvart þar sem Illmatic er almennt talin sígild meðal áhugamanna um rapptónlist.

Nánar: https://timarit.is/view_page_i…

Í samtali við SKE í janúar sagði Óttarr að fyrir tilkomu internetsins var það gjarnan torvelt fyrir blaðafólk að afla sér heimildir:

„Á þessum tíma fyrir tíma internetsins var gjarnan óhægt um heimildaöflun, sérstaklega fyrir smágreinar af þessu tagi—sem engan grunaði heldur að ættu mikið meira en skammlífi.“

Nánar: http://ske.is/grein/thegar-ottarr-proppe-gagnryndi-illmatic-pilot-thattur-hladvarps-ske-myndband

Að lokum má þess geta að útgangspunktur hlaðvarps SKE er Frelsi; í seríunni mun ritstjórn SKE velta hugtakinu Frelsi fyrir sér og þá í samhengi við tónlist.

Hér fyrir neðan er svo Illmatic á Spotify.

Auglýsing

læk

Instagram