Ungfrú Ísland verður krýnd í Hörpu í kvöld og keppnin verður í beinni útsendingu á Stöð 2. Nútímanum fannst því tilvalið að rifja upp eitt eftirminnilegasta atvik keppninnar, sem var þegar Unnur Birna krýnd arftaka sinn árið 2006. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
Sjá einnig: Stelpurnar í Ungfrú Ísland slá í gegn á Snapchat
Keppnin var haldin á Broadway og salurinn tók andköf þegar Unnur Birna sást hreinlega hrynja í jörðina. Unnur slapp við alvarleg meiðsli og í Fréttablaðinu á sínum tíma sagði hún að gólfið á sviðinu hafi verið slysagildra.
„Gólfið var bónað fyrr um daginn og það var ekki búið að strjúka yfir það þannig að þetta var alveg eins og skautasvelli,“ sagði Unnur Birna létt í Fréttablaðinu.
Dísa í World Class og Ingunn Sigurpálsdóttir voru einnig næstum því dottnar á þessum sama stað fyrr um kvöldið og því má segja að ég hafi tekið þetta með trompi í lokin.
Hún var þó ekki alveg óhrufluð og þurfti að byrja á afmælisdaginn sinn á því að kíkja upp á slysa varðstofu þar sem olnboginn var talinn brotinn.
„Mér var ráðlagt að fara og láta kíkja á þetta en sem betur fer var allt í lagi,“ sagði Unnur Birna.
Í Fréttablaðinu á sínum tíma var einnig rætt við Elínu Gestsdóttur, þáverandi framkvæmdastjóra keppninnar. Hún sagðist dást að Unni Birnu fyrir að taka þessu svona vel, enda hefðu ófáar drottningar látið þetta slá sig út af laginu.
„Hún stóð sig eins og sannkölluð hetja. Unnur var með Ungfrú heimur-kórónuna á höfðinu sem er mjög verðmæt en sem betur fer kom ekkert fyrir hana.“ sagði hún.
Unnur Birna krýndi svo arftaka sinn eftir atvikið og lét eins og ekkert hefði í skorist. Hér má sjá þetta eftirminnilega atvik sem fjölmiðlar á sínum tíma kölluðu atvik ársins.
Nýtt! taktu próf! Hvaða Fóstbræðrapersóna ert þú?