• Fréttir
    • Fólk
    • Pólitík
    • Útlönd
  • Myndbönd
    • Nútímafólk
    • Nútíminn
    • Grín
    • Namm
  • Matur
  • Alvarpið
    • Dagskrá og leiðbeiningar
    • Popp og fólk
    • Bíó Tvíó
    • Áhugavarpið
    • Eusebio
    • Englaryk
    • Eldri hlaðvörp
      • Sunnudagsleikhúsið
      • Viskíhlaðvarp Majó
      • Virðulegi forseti
      • Þjóðarskútan
      • Spinnipúkinn
      • Fólk er fífl
      • Á trúnó
      • Í kasti með Dr. Gunna
      • Útvarp Flatey
      • Trí ló gík
      • Ástin og leigumarkaðurinn
      • Ólíkindatólið
      • Sultukrukkudómurinn
      • Júpíter
      • Rými
      • Glerslíparinn
      • Cous Cous og föðurlandið
      • Eftir súpuna sérðu liti hafsins
      • Grínistar hringborðsins
      • Hlaðvarpið með Simon.is
      • Finndið
      • Ísland í dag, Satan
  • Örskýringar
  • Raddir
  • Fréttir
    • Fólk
    • Pólitík
    • Útlönd
  • Myndbönd
    • Nútímafólk
    • Nútíminn
    • Grín
    • Namm
  • Matur
  • Alvarpið
    • Dagskrá og leiðbeiningar
    • Popp og fólk
    • Bíó Tvíó
    • Áhugavarpið
    • Eusebio
    • Englaryk
    • Eldri hlaðvörp
      • Sunnudagsleikhúsið
      • Viskíhlaðvarp Majó
      • Virðulegi forseti
      • Þjóðarskútan
      • Spinnipúkinn
      • Fólk er fífl
      • Á trúnó
      • Í kasti með Dr. Gunna
      • Útvarp Flatey
      • Trí ló gík
      • Ástin og leigumarkaðurinn
      • Ólíkindatólið
      • Sultukrukkudómurinn
      • Júpíter
      • Rými
      • Glerslíparinn
      • Cous Cous og föðurlandið
      • Eftir súpuna sérðu liti hafsins
      • Grínistar hringborðsins
      • Hlaðvarpið með Simon.is
      • Finndið
      • Ísland í dag, Satan
  • Örskýringar
  • Raddir
Áhugavert

Orðin sem eru notuð á Norðurlandi: „Ef það verður einhverntímann stríð á milli landshluta hefst það sennilega á þessu rifrildi“

3 desember, 2018, 10:45 | Nútíminn


Nútíminn

Sem eini Akureyringurinn í fjölskyldunni hefur mér oft verið strítt vegna norðlensku mállýskunnar í gegnum tíðina. Ég ólst upp við bæði norðlenska og sunnlenska málnotkun og þurfti að velja á milli orða eftir því hvort ég talaði við vini mína eða foreldra.

Ég ákvað að taka saman stuttan lista til skemmtunar yfir uppáhalds norðlensku orðin mín. Ekki hafa áhyggjur, ég veit alveg að það segir enginn kók í bauk.

1. Brók-Nærbuxur

Brók er kannski ekki fallegasta orð íslenskrar tungu en maður er bara svo ofboðslega lengi að segja nærbuxur.Það virðist vera að Reykvíkingar þurfi að hafa aðeins skýrari mynd af því hvað er raunverulega að gerast í orðanotkun sinni. Á meðan við Norðlendingar gerum okkur grein fyrir því að undirföt okkar séu í raun buxur sem eru nær líkamanum en aðrar buxur þurfum við ekki áminningu um það í hvert skipti sem við tölum um hlutinn.

2. Boppa-Skoppa

Ég sagði einu sinni boppa fyrir framan hóp af fólki sem býr í Reykjavík og varð að athlægi á augnabliki. Hópurinn sprakk úr hlátri og kók í bauk brandararnir voru látnir fljúga. Þegar ég náði að jafna mig og safna kjarki í að spyrja hvaða orð þau notuðu var svarið: Skoppa. Þvílíkur hálfviti sem ég gat verið.

3. Strengir-Harðsperrur

Ef ég þyrfti að segjast vera með harðsperrur hvern einasta dag eftir að ég er búinn að stunda líkamsrækt myndi ég aldrei hreyfa mig.

4. Moli-Brjóstsykur

Enn og aftur praktísk stytting hjá Norðlendingnum. Brjóstsykur er tökuorð úr danska orðinu brystsukker sem var upphaflega nafn yfir lyf gegn brjóstverkjum. Þannig brjóstsykur er í raun Rennie. Moli er réttmætt orð yfir sælgætið sem við elskum öll.

5. Punkterað-Sprungið dekk

Það er einfaldlega ótrúlega svalt að segja punkterað.

6.Flus-Hýði

Við flysjum okkar kartöflur.

7. Pylsa-Pulsa 

Ef það verður einhverntímann stríð á milli landshluta hefst það sennilega á þessu rifrildi. Ef ég á að vera hreinskilinn er mér nokkuð sama hvort orðið er notað yfir þennan dýrindis mat. Ég skil bæði.

8.Svelgur-Niðurfall

Svelgur er frábært orð yfir þetta ógnvænlega fyrirbæri.

9.Stertur-Tagl

Þegar Akureyringar binda hárið sitt í teygju tala þeir flestir um að setja stert í hárið. Þegar Reykvíkingar binda hárið í teygju tala þeir um að setja tagl í hárið.

Þessi listi birtist upphaflega á norðlenska vefmiðlinum Kaffið.is

  • Facebook
  • Twitter




Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa:

Sjö klikkaðar staðreyndir sem sýna að Mike Pence hatar hinsegin fólk: „Þeim fylgir gífurlegt magn af sjúkdómum“

Níu óþolandi hlutir sem túristar gera á Íslandi: „Ég vil frekar að þú kúkir í garðinn hjá mér“

15 skondnar staðreyndir um Ísland sem hafa vakið heimsathygli: „Eitt trampólín slys fyrir hverja 1143 Íslendinga“





Nútíminn

Sara sigraði í Dubai

Skíðasvæðið í Bláfjöllum var opnað í dag:„Heimsklassafæri“

Pizza með beikoni, karamellu-lauk og spínati

Bogomil Font og Big Band Samúels Jóns Samúelssonar voru í jólastuði

Læt drauminn rætast eftir blóðtappa á Balí

Berglind Festival og menn ársins

Jóla-Saga fyrir þjóðina

„Ég var bara búin, taugakerfið, líkaminn og allt saman“

Uppselt í svæði Platinum, 2, 3 og 4 á Andrea Bocelli

Hrefna kenndi Evu Laufey að búa til ómótstæðilega brownie með Creme Brulee kremi

Tveir handteknir í Leifsstöð

Dýrkeypt ferð í Jökulsárlón

  • MEST LESIÐ

    • „Manni var svona hætt að standa á sama þarna á tímabili“
    • Öll bestu og skemmtilegustu tíst vikunnar:„Við kærastan ætluðum að gera fínt en ...
    • „Ég var bara búin, taugakerfið, líkaminn og allt saman“
    • Dýrkeypt ferð í Jökulsárlón
    • Berglind Festival og menn ársins
  • VIKAN

    • Öll bestu og skemmtilegustu tíst vikunnar:„Við kærastan ætluðum að gera fínt en lögðum óvart bölvun á jólin“
    • „Manni var svona hætt að standa á sama þarna á tímabili“
    • Ellen gefur 300 flugmiða til Íslands
    • „Ég var bara búin, taugakerfið, líkaminn og allt saman“
    • Rúrik hannaði bol fyrir 66°Norður

Örskýringar

Örskýring: Að missa svefn yfir þriðja orkupakkanum

Örskýring: Hvers vegna eru Tyrkir brjálaðir út af uppþvottabursta?

Örskýring: Leikmaður í Pepsi Max deild karla gæti verið á leið í bann fyrir rasísk ummæli

Meira

Ekki missa af þessum

Jóla-Saga fyrir þjóðina

Uppselt í svæði Platinum, 2, 3 og 4 á Andrea Bocelli

Tveir handteknir í Leifsstöð

Dýrkeypt ferð í Jökulsárlón

Ísold og Már eiga sigurlagið í jólalagakeppni Rásar 2

Nútíminn

Auglýsingar
Um Nútímann