Örskýring: Ha? Af hverju verða engir áhorfendur á leik Úkraínu og Íslands í kvöld?

Um hvað snýst málið?

Engir áhorfendur verða á leik Úkraínu og Íslands í Kænugarði í kvöld, aðeins 70 þúsund tóm sæti.

Um er að ræða refsingu vegna óæskilegrar hegðunar stuðningsmanna úkraínska liðsins.

Hvað er búið að gerast?

Stuðningsmenn Úkraínu viðhöfðu kynþáttafordóma í leik liðsins gegn San Marínó í undankeppni HM 2014. Þeir gerðu slíkt hið sama í leik liðsins gegn Spánverjum í undankeppni EM en í leiknum bendu þeir einnig laser að spænsku leikmönnunum.

FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandið, ákvað að einn leikur Úkraínu í undankeppni HM 2018 yrði leikinn fyrir luktum dyrum í refsingarskyni fyrir hegðunina í leiknum gegn San Marínó.

UEFA ákvað að Úkraína þyrfti einnig að leika einn leik fyrir luktum dyrum í undankeppni EM 2020.

Hvað gerist næst?

Kristján Guðmundsson, sérfræðingur Fótbolta.net, sagði að það gæti orðið erfitt fyrir íslensku leikmennina að fara úr adrenalínkikkinu sem fylgdi því að spila á EM í Frakklandi og spila þar sem engir áhorfendur eru. Aftur á móti gæti áhorfendaleysið hjálpað þar sem stuðningmönnum Úkraínu fylgir gríðarlegur hávaði.

Úkraínskir stuðningmenn munu fjölmenna í torgi fyrir utan leikvanginn þar sem leikurinn verður sýndur á risaskjá. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV og hefst hann kl. 18.45.

Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.

Auglýsing

læk

Instagram