Örskýring: Hver er Channing Tatum?

Um hvað snýst málið?

Channing Tatum kom til landsins í dag ásamt félögum sínum. Hann sást spóka sig um á Laugaveginum í dag og hyggst meðal annars skoða jökla á meðan hann dvelur hér á landi.

Auglýsing

Hvað er búið að gerast?

Channing Tatum er bandarískur leikari, kvikmyndaframleiðandi, dansari og fyrirsæta. Hann hefur átt farsælan feril í kvikmyndum og er metinn á 50 milljónir dala.

Hann varð 35 ára gamall 26. apríl síðast liðinn og er kvæntur leikkonunni Jennu Dewan-Tatum. Þau eignuðust dóttur árið 2013.

Tatum kom fyrst fram á sjónarsviðið í kvikmyndinni Coach Carter árið 2005. Hann sló hins vegar í gegn ári síðar í dansmyndinni Step Up.

Tatum hefur einnig farið með hlutverk í vinsælum myndum á borð við G.I. Joe: The Rise of the Cobra, framhaldinu G.I. Joe: Retaliation, Magic Mike, 21 Jump Street, framhaldinu 22 Jump Street og Foxcatcher.

Í júlí er svo væntanlegt framhald af Magic Mike en fyrri myndin var lauslega byggð á lífi hans.

Tatum er mikið kyntröll og var til að mynda valinn kynþokkafyllsti maður heims í tímaritinu People árið 2012.

Hvað gerist næst? 

Samkvæmt fyrstu frétt mbl.is um komu leikarans til landsins hyggst hann dvelja hér á landi í viku.

Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing