Guð blessi Ísland!

Íslendingar eru almennt betri og hæfari manneskjur en flest það fólk sem býr í öðrum löndum. Því er helst að þakka þeirri hreinu fæðu sem við njótum hér. Svínakjötið og kornfleksið sem við kaupum í Bónus er laust við óhreinindi og þann toxóplasma sem herjar á útlendinga og útskýrir að miklu leiti einkennilega hegðun þeirra.

Hvergi er betra að búa í heiminum en á Íslandi. Hvergi eru sumrin jafn falleg og vatnið jafn hreint og tært. Það sést hverjir drekka íslenskt vatn!

Íslenska pylsan er heimsfræg ásamt íslensku kleinunni og kokkteilsósunni. Allt er þetta íslensku sauðkindinni að þakka. Hverjir voru það sem fundu upp íslensku lopapeysuna? Voru það ekki kristnir íslendingar? „Ef þér étið kind og fylgið kristilegum gildum verðið þér hamingjusamir,“ segir hið fornkveðna. Þetta eru orð að sönnu. Íslenska sauðkindin er sannkallað guðslamb. Við göngum í því og berum það innra með okkur.

Þegar við troðum í okkur íslenskri pylsu þá erum við ekki bara að borða grísa- , nautgripa- og kindakjöt, kartöflusterkju, sojaprótein, salt, glúkósa, krydd, bragðefni, laukduft, sýrustilli, þráavarnarefni og rotvarnarefni, sem tryggja langan lífaldur, heldur erum við og að gleypa gildi. Mikilvægasta gildið er Barnatrú. Það kennir okkur að vera ekki að hugsa of mikið um hlutina heldur trúa bara því sem lætur manni líða vel. Því þá verður allt í lagi og danska pulsan og remúlaðið renna saman við sólgylltan veg einhverstaðar útá landi og öðlast eilífan sess í sálinni.

Ég vel íslenskt grænmeti og stykki af íslenska svíninu, sem er þriðja glæsilegasta lífveran á Íslandi, á eftir okkur og rollunni. Ég vel það ekki vegna þess að mér finnst það gott. Það lætur mér líða vel vegna þess að ég veit hvaðan það kemur.

Guð blessi ísland!

Auglýsing

læk

Instagram