today-is-a-good-day

Hey, Björn Bjarnason!

Ef þú ætlar að nota bloggsíðuna þína til að skjóta á mig, passaðu að vera með hlutina á hreinu. Ég hef ekki minnstu hugmynd um hvað þú ert að tala um hérna:

„Fleira er fyndið við uppnámið hjá Atla Fannari en það sem Sigurður nefnir. Fyrir nokkrum vikum skömmuðu Atli Fannar og félagar Morgunblaðið fyrir að segja 9.500 manns hafa komið saman til mótmæla á Austurvelli 4. apríl en ekki 23.000 eins og fjölmiðlavinir mótmælenda nefndu. Lögreglan staðfesti að Morgunblaðið fór með rétt mál. Ætli Atli Fannar leiti til hennar núna vegna fjöldans sem heimsótti Nova á meðan Davíð svaraði þar spurningum?“

Ég og hvaða félagar?

Hvar á ég að hafa birt meintar skammir?

Ertu að rugla mér saman við einhvern annan?

Mig langar í alvöru að vita hvað þú ert að tala um. Þú getur til dæmis sent mér póst til að útskýra það. Eða bara hringt.

Auglýsing

læk

Instagram