Mamma, get ég fengið meiri og betri þjónustu? Mamma, ég þoli þig ekki!

Það að verða foreldri felur í sér stórkostlega aðlögunarhæfni. Ekki aðeins hættir þú að vera aðal, og verður bara auka, í þinni eigin tilveru heldur getur þú þurft að bregðast við mjög ófyrirsjáanlegum hlutum og verkefnum sem barnið þitt þeytir í andlitið á þér. En sem betur fer eru börn frekar fyrirsjáanleg í viðhorfum sínum. Kúrfa ástar og velþóknunar frá 0-100 ára gæti litið cirka svona út:

0-1 ára           Ég get ekki án mömmu verið.

1-2 ára           Ég get ekki án mömmu verið og nú veit ég það.

2-3 ára           Ég get alveg verið án mömmu en það þýðir ekki endilega að ég vilji það.

3-4 ára           Ég get allt sjálf/ur en það er fínt að hafa mömmu around.

5-6 ára           Mamma, bjargaðu þessu fyrir mig!

7-10 ára         Mamma, get ég fengið meiri og betri þjónustu?

10-12 ára       Æi, mamma!

13-16 ára       Mamma, láttu mig vera.

17-19 ára       Mömmur eru nettar (eða leim, fer eftir vindátt).

20-25 ára       Mamma mín skilur ekkert!

25-30 ára       En það er allt best heima hjá mömmu!

30-60 ára      Ó, mamma. Veistu þetta var allt rétt hjá þér.

50-100 ára    Ó, mamma bara ef þú værir hérna ennþá.

 

Nútímaforeldrar eru líka á Facebook.
Lækaðu ef þér líkar síðan okkar og þá missir þú ekki af neinu.
Svo er dásamlegt að deila.

Auglýsing

læk

Instagram