Ágætu skólastjórnendur og kennarar á unglingastigi Háteigsskóla,
Okkur fullorðna fólkinu hér á heimilinu þykir ekki viðeigandi að kennarar og skólastjórnendur skipti sér af klæðnaði dóttur okkar. Í bréfi frá ykkur er fjallað um kynferðislegar vísanir magabola og eins virðist fara fyrir brjóstið á ykkur þegar sést í bert hold unglinganna við daglegar athafnir. Í okkar huga er þetta vandamál sem liggur hjá ykkur en ekki unglingunum. Ef þið leggið kynferðislegar meiningar í klæðaburð annarra (og þá sérstaklega klæðaburð barna og unglinga) þurfið þið að hugsa ykkar gang og það rækilega.
Mótmæli síðstu viku hafa varla varið framhjá mörgum og fögnum við því að þið ætlið að ræða um efni þessara mótmæla. Okkur þykir samstaða og frumkvæði unglinganna vera til mikillar fyrirmyndar og sýna fram á framúrskarandi hæfni í gagnrýnni hugsun og hæfileika til að endurspegla þá umræðu og byltingu sem hefur átt sér stað í samfélaginu okkar í kjölfar Druslugöngunnar og annarra tengdra viðburða. Háværar raddir, aðallega innan raða ungra kvenna, um rétt sinn til eigin líkama og tilveru hafa hvatt ungar stelpur til að skila skömminni til þeirra sem reyna að þröngva henni upp á þær, skila henni til þeirra sem reyna að láta þær skammast sín fyrir tjáningarmáta, líkama sína eða jafnvel tilburði sína til að sýna kynþokka.
Við höfum heyrt að svör ykkar til unglinganna um hversvegna magabolir eru bannaðir séu á þá leið að þessi klæðnaður „trufli hina“. Þarna sjáum við skólabókardæmi um svokallaða slutshaming eða drusluskömm þar sem stelpur eru gerðar ábyrgar fyrir meintu hömluleysi annarra (oftast drengja í því heteronormativu samhengi sem ríkir oftast innann veggja stofnanna). Drusluskömm er einn af stórum þáttum sem ýta undir nauðgungarmenningu þar sem stúlkum er kennt að skammast sín fyrir útlit sitt og klæðaburð. Þætti okkur vænt um að skólinn sinnti sínu ábyrgðarhlutverki á jákvæðan og uppbyggilegan máta þar sem starfsmenn og börn beri gagnkvæma virðingu hvert fyrir öðru. Okkur þykir gríðarlega mikilvægt að réttur nemenda til skoðanna sinna og ólíkra tjáningamáta (þ.m.t klæðaburður) sé virtur.
Áfram unglingalýðræði.
Kærleikskveðjur,
Mamma og mamma