Alexander Jarl, Kilo og Ragga Holm á Black Kross

Fréttir

Um þessar mundir fagnar húðflúrstofan Black Kross í Kópavogi eins árs afmæli.

Instagram: https://www.instagram.com/blac…

Í tilefni þess blæs stofan til afmælisveislu næstkomandi 15. September—og fer veislan fram á stofunni sjálfri (Hamraborg 14 a). 

Teitið hefst kl 21:00 og mun fjöldinn allur af listafólki stíga á svið. Þá verða sérstök afmælistilboð í boði fyrir gesti (20% afsláttur af öllum tímabókunum þetta kvöldið) ásamt léttum veitingum.

Dagskráin—sem hefst á slaginu 21:00—er svohljóðandi:

—Alexander Jarl 
—Ragga Holm 
—Kilo 
—Balatron 
—BLKPRTY
—og fleiri 

Hér fyrir neðan geta lesendur hlýtt á lög frá fyrrnefndu listafólki.

Auglýsing

læk

Instagram