„All Star“ var samið fyrir fólk sem var lagt í einelti fyrir að hlusta á Smash Mouth

Áhugavert

Nýverið rataði áhugaverð grein á forsíðu Reddit og þá í flokknum TIL, eða Today I Learned (Í dag lærði ég …) en þar vísar einn notandi síðunnar í uppgötvun sína þess efnis að lagið All Star—sem naut mikilla vinsælda árið 1999—eftir hljómsveitina Smash Mouth var að hluta til samið til þess að hughreysta aðdáendur sveitarinnar sem voru lagðir í einelti fyrir það að, jú, vera aðdáendur sveitarinnar.

Nánar: https://www.reddit.com/r/today…

Í greininni vísar notandinn racer5001 í viðtal blaðamannsins Carl Wiser, fyrir hönd vefsíðunnar songfacts.com, við lagahöfundinn Greg Kamp úr Smash Mouth. Í viðtalinu spyr Wiser: „All Star er annars vegar mjög augljóst lag en hins vegar er það aðeins dýpra en margan grunar … geturðu sagt okkur frá því.“

Greg Camp svarar þá með eftirfarandi orðum:

„Já, við vorum að fylgja eftir útgáfu fyrstu breiðskífu okkar með þar til gerðu tónleikaferðalagi. Þetta var á þeim tíma þar sem aðdáendur rituðu enn bréf til átrúnaðargoða sinna með blýanti á blað og fengum við oft til okkar stóra poka fulla af aðdáendabréfum. Við tókum þessa poka með okkur á almenningsþvottahús (laundromat) og á meðan við biðum eftir því að þvotturinn okkar þornaði lásum við bréfin. En sú var raunin að 85-90% þessara bréfa var ritað af ungu fólki sem, að eigin sögn, var lagt í einelti af systkinum sínum eða öðrum fyrir það að hlusta á Smash Mouth, eða fyrir það að hafa dálæti á því sem það hafði dálæti á, o.s.frv. Í kjölfarið ákváðum við að semja lag tileinkað þessu fólki … ‘All Star’ var hugsað sem uppbyggilegt lag sem átti að styrkja sjálfstraust hlustenda.“

– Greg Camp (Smash Mouth)

Áhugasamir geta lesið viðtalið í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Nánar: https://www.songfacts.com/blog/…

Að lokum má þess geta að annar notandi Reddit, RobertBorden, brást við þessum upplýsingum með eigin kaldhæðnislegu upplifun: 

„Í ljósi þessa upplýsinga er það frekar sposkt að strákurinn sem lagði mig í einelti í barnaskóli var fremur holdugur strákur sem klæddist gjarnan boli merktum Smash Mouth—og það sem kemur kannski enn meira á óvart er að faðir hrekkjusvínsins fór skóla á milli til þess að tala gegn einelti.“

– RobertBorden

Auglýsing

læk

Instagram