„Can You Feel It“ eftir Birgir næstum þrisvar sinnum vinsælla en „B.O.B.A.“ á Spotify

Fréttir

Síðastliðinn 22. ágúst gaf söngvarinn Birgir út lagið Can You Feel It á Spotify – en athygli vekur að notendur Spotify hafa spilað lagið hátt í þrjú milljón skipti frá því að það var gefið út. 

Verður þetta að teljast ágætis árangur sérstaklega ef vinsældir lagsins á Spotify eru sett í samhengi við nokkur vinsælustu lög ársins á Íslandi:

Flytjandi             Lag                          Spilanir á Spotify

Birgir                 Can You Feel It         2,910,593
Aron Can            Fullir vasar
              1,426,636
JóiPé x Króli      B.O.B.A.                   1,003,189
JóiPé x Chase   Ég vil það                 1,089,486
Joey Christ       Joey Cypher             927,145
Áttan                 Neinei                        916,225

Líkt og fram kom í viðtali við Birgir á Albumm.is í byrjun september er lagið skálduð saga um ástina og lífið:

„(Lagið) fjallar í mjög stuttu máli um tvo einstaklinga sem upplifa það að verða ástfangnir í fyrsta skiptið, kannski er þetta æskuást með örlítilli dramatík, sem er jú sígilt minni.“

– Birgir Stefánsson (Albumm.is)

Birgir stefnir að því að gefa út stök lög á næstu mánuðum og vonast til að gefa út hljóðversplötu á einhverjum tímapunkti en hann sendi frá sér smáskífuna Birgir síðastliðinn maí.

Nánar: https://albumm.is/kannski-er-th…

(Hlekkur á grein um lagið á Scandipop.)

https://www.scandipop.co.uk/in…

Auglýsing

læk

Instagram