today-is-a-good-day

Elín Sif frumflytur nýtt lag í hljóðveri Sýrlands—„Upp að mér“

Sýrland Sessions

Í sumar fengu SKE og Stúdíó Sýrland fjórar söngkonur til liðs við sig. Hver söngkona samdi eitt lag sem var síðar hljóðritað í hljóðveri Sýrlands en úr varð svo myndbandsserían Sýrland Sessions þar sem sköpunarferlið var rætt og upptaka hvers lags fest á filmu.

Í fjórða og síðasta þætti fyrstu seríu Sýrland Sessions flytur listakonan Elín Sif Halldórsdóttir lagið Upp að mér í hljóðveri Sýrlands (sjá hér að ofan) en lagið útsetti Magnús Jóhann Ragnarsson. Gítarleikur var í höndum Reynis Snæs Magnússonar. Myndbrotin sem birtast í þættinum eru úr stiklu fyrir kvikmyndina Lof mér að falla en Elín Sif fer með eitt af aðalhlutverkum myndarinnar. 

Líkt og fram kemur í viðtalinu stefndi Elín Sif upprunalega á feril í dansi:

„Ég var að æfa ballet og stefndi upphaflega á feril í dansi. Svo meiddist ég fremur illa og neyddist til þess að hætta þegar ég var 15, 16 ára. Ég þurfti því að finna sköpunarþörfinni annan farveg en þar sem mamma er tónlistarkennari, í grunninn, kenndi hún mér hljóma á píanó—og kom tónlistin svolítið náttúrulega í kjölfarið.“

– Elín Sif

Þess má einnig geta að Elín Sif er meðlimur í hljómsveitinni Náttsól en lagið sem hljómar undir viðtalinu er ábreiða af laginu Hyperballad (Björk) eftir Náttsól. Þá gaf Elín Sif einnig út lagið Make You Feel Better í sumar.

Auglýsing

læk

Instagram