Myndband sem bandaríkjamaðurinn Bra Fowler birti á Facebook síðu sinni í gær hefur vakið mikla lukku á netinu.
Í myndbandinu má sjá son Fowler, Braheim, klifra niðurlútur upp í bíl föður síns á leiðinni á hafnaboltaleik en Braheim var fullviss um að faðir sinn hafði gleymt afmælinu sínu.
„Stór leikur framundan í dag!“ segir Fowler er feðgarnir ganga í átt að bílnum.
Því næst biður Bra Fowler son sinn um að ná í pakka fyrir sig í skottinu og eru viðbrögð Braheim stórkostleg.
„Ekki gráta. Ef þú byrjar að gráta þá byrja ég að gráta!“ segir Bra Fowler að lokum er feðgarnir tárast.