Fjórir fræknir framflytja rímur—“Summer On Lock“ Royce, Pusha T, Jadakiss og Fabolous

Fréttir

Meðal núlifandi rappara eru þeir Royce 5’9“, Fabolous, Jadakiss og Pusha T almennt taldir til orðheppnari manna. Hver og einn hefur samið sinn skerf af eftirminnilegum erindum og flestir þeir rapparar sem gerast svo óheppnir að flytja rímur á eftir þeim, í sama lagi, falla óneitanlega í skuggann. 

Verður það því að teljast í frásögur færandi þegar fyrrnefndir fjórir rapparar koma við sögu í einu og sama laginu. Er þetta raunin í tónverkinu Summer On Lock sem er að finna á plötunni Book of Ryan sem Royce 5’9“ gaf út í ár. Myndbandið við lagið kom út í fyrradag (21. ágúst) (sjá hér að ofan). 

Á meðan margir aðdáendur harma hlutskipti Pusha T í laginu—en hann sér einvörðungu um viðlagið—eru flestir á því að Fabolous steli senunni:

Grind all winter, shine all summer /
Life’s a bitch and I’m trynna keep you slimeballs from her /
Any leaks, we gon’ fix it, none of mine called plumbers /
Nina to your chest, player, like nine y’all number /
We Rondo ni$#as, real recognise real, you John Doe, ni$#a /
I made a closet out of a condo, ni%#a /

Hér fyrir neðan er svo platan Book of Ryan í heild sinni á Spotify.

Auglýsing

læk

Instagram