„Bjartari tímar rétt handan við hornið.“ – AFK gefur út myndband við „You Know“

Fréttir

Reykvíski tónlistarmaðurinn AFK gefur einvörðungu út ný lög 13. hvers mánaðar. Í dag (13. janúar) er akkúrat eitt ár liðið frá því að hann gaf út sitt fyrsta lag (Black) og – staðráðinn í því að viðhalda þessari hefð – var AFK að gefa út nýtt lag rétt í þessu (sjá hér fyrir ofan).

Lagið ber titilinn You Know og fjallar að hluta til um stress: „Lagið fjallar um þessa tilhneigingu til þess að ofhugsa hlutina og stressið sem því fylgir. Stundum skortir manni viljastyrk. Lagið snertir einnig á þessari yfirþyrmandi tilfinningu að það sé engin leið út. Andartakið varir ekki,“ segir AFK í fréttatilkynningu sem fylgir útgáfu lagsins.

Myndbandinu leikstýrði Markus Rowntree sem leitaðist við að fanga dimmu tilfinningar lagsins:

„Myndbandið sýnir Yin og Yang lífsins: eiturlyf og reglusemi, hið góða og hið slæma, náttúru og stríð, erfiðleika og sigra … það er mikilvægt að hafa það hugfast að bjartari tímar eru ávallt rétt handan við hornið.“

– AFK

Að lokum má þess geta að lagið You Know er einnig aðgengilegt á Spotify en þar geta hlustendur jafnframt hlýtt á plötuna Wasting My Time sem AFK gaf út í fyrra.

Facebook-síða AFK: https://www.facebook.com/andrifk13/

Nánar: https://www.afk13.com/

Auglýsing

læk

Instagram