today-is-a-good-day

Bríet ræðir nýja myndbandið: „In Too Deep“

Síðastliðinn föstudag gaf söngkonan Bríet út myndband við lagið In Too Deep (sjá neðst) en um ræðir fyrsta myndbandið sem söngkonan gefur út. Myndbandinu leikstýrði Bríet sjálf í samstarfi við ljósmyndarann Önnu Maggý. 

Stuttu fyrir útgáfu myndbandins leit Bríet við í hljóðver SKE með það fyrir stafni að fræða áhorfendur nánar um hugmyndina á bak við myndbandið, tökur þess og ýmislegt annað (sjá hér fyrir ofan).

Eins og fram kemur í viðtalinu var Bríet ekki ýkja gömul þegar hún ákvað að leggja tónlistina fyrir sig:

„Ég var svona 13 ára þegar ég áttaði mig á því að tónlistin væri það sem mig langaði að gera. Ég tók upp gítarinn og bað pabba um að kenna mér. Ég var staðráðin í því að spila í fermingunni minni, fyrir mömmu, sem ég svo gerði. Ég gat það reyndar ekki; ég grét svo mikið. En það var rosa falleg stund.“

– Bríet

SKE hvetur lesendur til að fylgjast með þessari hæfileikaríku söngkonu í framtíðinni.

Facebook: https://www.facebook.com/brietmusic/

Instagram: https://www.instagram.com/briet_music/

Auglýsing

læk

Instagram