DJ B-Ruff með sjóðheita syrpu í Tetriz (myndband)

Fyrsta föstudag hvers mánaðar fer útvarpsþátturinn Tetriz í loftið á X-inu 977. Þátturinn er í umsjá plötusnúðsins Benedikts Freys Jónssonar – betur þekktur sem DJ B-Ruff – sem hefur það fyrir stafni að gera Hip Hop tónlist frá gamla skólanum hátt undir höfði.

DJ B-Ruff vék svo sannarlega ekki frá hefðbundinni dagskrá síðastliðinn föstudag (5. janúar) en eins og sjá má hér fyrir ofan bauð B-Ruff hlustendum upp á vandaða syrpu af old school rapptónlist (SKE klippti saman brot af því besta).

Þátturinn er aðgengilegur í heild sinni á Soundcloud-síðu Tetriz:

Auglýsing

læk

Instagram