„Ísland hefur alltaf heillað mig“ (myndband)

Fréttir

„Frá því að ég byrjaði að skapa tónlist hefur náttúran ávallt veitt mér innblástur,“ segir hinn franski Mehdi Benjelloun—betur þekktur sem Petit Biscuit—í myndbandi sem hann birti á Youtube-síðu sinni í gær (5. febrúar).

Benjelloun hefur, ár frá ári, ferðast á milli landa til þess að sækja sér innblástur—en ákvað þó að ganga skrefinu lengra í ár, ef svo mætti að orði komast:

„Ég ákvað að ferðast til Flateyrar, lítils þorps á Vestfjörðum.“

Í fylgd með Benjelloun eru ljósmyndarinn Jonathan Bertin og kvikmyndagerðamaðurinn Baptiste Cornu (sem leikstýrði einmitt ofangreindu myndbandi). Hyggst Benjelloun dvelja á Flateyri í mánuð. Samkvæmt Instagram-reikningi Benjelloun kom hann til Íslands 23. janúar síðastliðinn og fer því væntanlega aftur heim í lok febrúar. 

Þess má geta að innan við sólarhringur er liðinn frá því að Benjelloun birti myndræmuna en þegar hafa tæplega 12.000 manns horft á myndbandið. Ásamt því að fara á hestbak stytta félagarnir sér stundir á Íslandi með því að teika jeppa á lítilli snjóþotu í myndbandinu. 

Petit Biscuit nýtur mikilla vinsælda á Spotify, meðal annars. Notendur streymiveitunnar hafa t.a.m. hlýtt á lag hans Sunset Lover yfir 300 milljón sinnum. Mælum við þó sérstaklega með flutningi Petit Biscuit og söngkonunnar Bene á laginu Problems í útvarpsþættinum Triple J í Ástralíu (sjá neðst). 

Áhugasamir geta fylgst með Petit Biscuit á neðangreindum miðlum:

Vefsíða: https://www.petitbiscuit.fr
Facebook: https://petitbiscu.it/Facebook
Twitter: https://petitbiscu.it/Twitter
Instagram: https://petitbiscu.it/Instagram
Soundcloud: https://petitbiscu.it/Soundcloud
Youtube: https://petitbiscu.it/YouTubeSubscribe

Auglýsing

læk

Instagram