Sjaldgæft myndband af Prince og Kendrick Lamar saman á sviði

Fréttir / Myndband

Árið 2014 steig Kendrick Lamar á svið í Paisley Park ásamt Prince og flutti lagið What’s My Name af plötunni Crystal Ball. Rapparinn var sérdeilis hress á sviðinu og bætti meira að segja eigin erindi við lagið.

Myndbandið var birt á Facebook síðu Prince Safnsins í dag í samstarfi við Yahoo.

Prince var mikill aðdáandi Kendrick Lamar og í sjaldgæfu viðtali við Smokey D. í fyrra sagði hann „Kendrick hefur eitthvað að segja. Hann er svo tær.“

Fyrr á árinu ljóstraði Kendrick upp um samstarf hans og Prince, en þeir unnu að lögum fyrir plötu Kendrick To Pimp a Butterfly. Hins vegar rataði efnið ekki inn á plötuna sökum þess að þeir kjöftuðu svo mikið í hljóðverinu.

Auglýsing

læk

Instagram