Glowie rappar í laginu No More í Hörpunni (myndband)

Söngkonan Glowie kom fram á Nordic Playlist setustofunni í Hörpunni á Airwaves hátíðinni í ár og flutti lagið No More en í dag birtist myndband af tónleikunum á Youtube. Í upprunalegu útgáfu lagsins flytur rapparinn Stony erindi, en eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir ofan tekur Glowie rappið að sér sjálf og leysir það af mikilli fagmennsku (ca. 2.25). 

Nordic Playlist er vefsíða sem einblínir á tónlist frá Norðurlöndunum með það fyrir stafni að auðvelda netverjum að finna góða tónlist frá Skandinavíu. Á síðunni fær tónlist frá Íslandi, Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi, Færeyjum og Grænlandi að njóta sín (nánar: https://nordicplaylist.com)

Hér fyrir neðan má svo sjá fleiri myndbönd frá Nordic Playlist tónleikunum:

Auglýsing

læk

Instagram