Hilmir Snær og Blær prýða næstu forsíðu SKE en þau leika aðalhlutverkin í Sölku Völku í Borgarleikhúsinu. Leikstjóri verksins er Yana Ross. Salka Valka verður frumsýnt á milli jóla og nýars í Borgarleikhúsinu. Í gær settist SKE niður með Hilmi og Blæ og ræddi Laxness, Sölku Völku, bókmenntir og margt, margt fleira. Allan Sigurðsson, ljósmyndari SKE, lét svo sjá sig að viðtalinu loknu og smellti af nokkrum frábærum myndum af þessu flotta fólki.
Auglýsing