Mimra flytur „Fuel“ í hljóðveri SKE

Síðastliðinn 9. október gaf söngkonan MIMRA út plötuna Sinking Island á Spotify. Um ræðir 12 laga hljóðversplötu sem söngkonan samdi að mestu leyti á meðan hún bjó í Hollandi og Englandi. Platan var fjármögnuð í gegnum Karolina Fund. 

Í tilefni útgáfunnar kíkti MIMRA við í hljóðver SKE í vikunni og flutti lagið Fuel (sjá hér fyrir ofan) en um ræðir fyrsta myndbandið af fleiri væntanlegum í myndbandsseríunni SKE SESSIONS (meira efni frá MIMRA mun rata inn á Ske.is á næstu dögum).

Þess má einnig geta að söngkonan hyggst fagna útgáfu plötunnar í Bæjarbíó næstkomandi 8. nóvember. 

Nánar: https://www.tix.is/en/event/50…

Hér er svo platan Sinking Island á Spotify:

(MIMRA gaf út myndband við lagið Play with fire fyrr á árinu.)

Auglýsing

læk

Instagram