Fyrir tveimur dögum síðan fóru tónleikar til styrktar forsetaframboði Andra Snæs fram á Húrra, en fram komu meðal annars Bubbi Morthens, Valdimar, Mammút og FM Belfast. Í gær birtist svo þetta skemmtilega myndband af forsetaframbjóðandanum stíga á svið ásamt stuðsveitinni FM Belfast. Andri var greinilega léttur á lund, dansaði af mikilli innlifun og barði í kúabjöllu.
Auglýsing