Nýtt frá Aminé: Heebiejeebies

Bandaríski rapparinn Aminé hefur verið iðinn við kolann síðastliðnar vikur; fyrir þremur dögum síðan gaf hann út lagið Heebiejeebies sem skartar söngkonunni Kehlani (sjá hér fyrir ofan) og ekki er langt síðan að rapparinn fékk Missy Elliott til liðs við sig á endurhljóðblandaðri útgáfu af laginu Redmercedes (sjé neðst).

Lagið Heebiejeebies pródúseraði Jahaan Sweet og samkvæmt Aminé varð lagið til eftir óvæntan hitting í hljóðveri í Los Angeles:

„Ég gekk inn í hljóðverið og hélt að ég væri á leiðinni á fund, eða í hádegisverð eða eitthvað álíka. Svo spurðu þau (Kehlani og Jahaan Sweet) hvort að við ættum ekki að taka upp lag saman. Þau spiluðu bítið fyrir mig og ég byrjaði að skrifa við það um leið. Í kjölfarið samdi Kehlani sinn hluta … Ég mætti í hljóðverið án tölvu og aðeins með símann minn. En þetta gekk upp.“

– Aminé

Auglýsing

læk

Instagram