Nýtt lag frá Frank Ocean og Travis Scott: Lens V2

Síðastliðinn laugardag (22. apríl) frumflutti söngvarinn Frank Ocean lögin Lens og Lens V2 í útvarpsþætti sínum Blonded sem hóf göngu sína fyrir stuttu á útvarpsstöð Apple, Beats 1 (lagið Lens V2 er í raun alveg eins og Lens en skartar einnig rapparanum Travis Scott).

Auglýsing

Frank Ocean hefur verið iðinn við kolann undanfarið en fyrir um tveimur vikum síðan gaf hann út lagið Biking

Í grein á vefsíðu Esquire frá því í byrjun apríl segir blaðamaðurinn Matt Miller að ekki liggi fyrir hvað Frank Ocean geri næst en stuttu áður en hann gaf út Biking sendi hann frá sér lagið Chanel: „Ef einhver annar listamaður hefði gefið út tvö ný lög með skömmu millibili væri það líklegt að hinn sami gæfi út nýja plötu í náinni framtíð. En þegar Ocean er annars vegar, er ekkert öruggt.“

Nánar: https://www.esquire.com/enterta…

Síðast gaf Frank Ocean út hljóðversplötuna Blond þann 20. ágúst 2016.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing