Strákarnir okkar í the Daily Show

The Daily Show er einn vinsælasti sjónvarpsþáttur Bandaríkjanna. Nú í vikunni tók stjórnandi þáttarins, Trevor Noah, íslenska fótboltaævintýrið fyrir og ræddi meðal annars dramatíkina á Englandi og tannlæknirinn Heimir Hallgrímsson. Besti hluti sögunnar að mati Trevor Noah var samt sem áður „geðsjúklingurinn“ Gummi Ben.

Noah lýsti tilþrifum Gumma með eftirfarandi orðum:

„Þetta var lýsandinn. Það hljómaði eins og einhver væri að reyna drepa hann í beinni útsendingu.“

– Trevor Noah

Auglýsing

læk

Instagram