„Biggi Lögga eða Biggie Smalls?“ – Black Pox svarar erfiðum spurningum

Tónlist

13. þáttur útvarpsþáttarins Kronik fór í loftið síðastliðið laugardagskvöld (4. mars). Gestir þáttarins voru þeir Bjarni Jónsson, einn af aðstandendum Secret Solstice hátíðarinnar, og rapparinn Black Pox, en sá síðarnefndi flutti tvö lög í beinni ásamt því að svara nokkrum vel sýrðum spurningum fyrir umsjónarmenn þáttarins; ýmislegt kom í ljós.

Þess má geta að Black Pox kemur fram á hinni svokölluðu Stagedive tónlistarhátíð næstkomandi laugardag 11. mars á skemmtistaðnum Húrra. 

Hér fyrir neðan má svo sjá BP rappa yfir bítið Juicy sem Biggie Smalls (a.k.a. Biggi Lögga) gerði frægt á tíunda áratugnum.

Auglýsing

læk

Instagram