Dillalude tekur Runnin’ eftir Pharcyde á Sónar (myndband)

Eins og fram hefur komið á Ske.is var hljómsveitin Dillalude einn af hápunktum 
Sónar hátíðarinnar að mati SKE en hljómsveitin sérhæfir sig í því að flytja og túlka 
tónlist Jay Dilla (Jay Dee) í lifandi tónum á sviði. 

Hljómsveitin samanstendur af þeim Magnúsi Tryggvasyni, Steingrími Teague, 
Benedikt Frey (DJ B Ruff) og Ara Braga Kárasyni. Bassaleikarinn Andri Ólafsson 
var einnig með Dillalude á sviði. Hljómsveitin kom  fram á undan Kött Grá Pje í Silfurbergi á laugardagskvöldinu. 

Hér fyrir ofan má sjá hljómsveitina túlka lagið Runnin eftir hljómsveitina The 
Pharcyde (lagið er jafnframt pródúserað af Jay Dilla). Runnin má finna á plötunni 
Labcabincalifornia sem kom út árið 1995. (hér fyrir neðan má einnig hlýða á 
lagið í 
upprunalegri útgáfu).

Auglýsing

læk

Instagram