Dillalude tekur Time eftir J-Dilla á Sónar (myndband)

Hljómsveitin Dillalude var einn af hápunktum Sónar hátíðarinnar í Hörpunni nú um helgina en hljómsveitin sérhæfir sig í því að flytja og túlka tónlist Jay Dilla (Jay Dee) í lifandi tónum á sviði.

Hljómsveitin samanstendur af þeim Magnúsi Tryggvasyni, Steingrími Teague, 
Benedikt Frey (DJ B Ruff) og Ara Braga Kárasyni (sem á jafnframt Íslandsmetið
í 100 metra spretthlaupi). Bassaleikarinn Andri Ólafsson var einnig með Dillalude 
á sviði en hljómsveitin steig á svið á undan Kött Grá Pje í Silfurbergi á 
laugardagskvöldinu.

Hér fyrir ofan má sjá hljómsveitina túlka lagið Time eftir Jay Dilla sem finna má á plötunni Donuts (hér fyrir neðan má einnig hlýða á lagið í útgáfu J-Dilla).

Auglýsing

læk

Instagram