today-is-a-good-day

Eminem með snilldarlegt erindi á nýjustu plötu Big Sean

Rapparinn Big Sean gaf út sína fjórðu hljóðversplötu í dag, þann 3. febrúar 2016. Platan kemur út á vegum GOOD MUSIC / Def Jam og ber titilinn I Decided og skartar hún jafnframt góðum gestum á borð við Migos, The Dream, Jeremih – og rapparanum Eminem.

Eminem rappar í laginu No Favors og ef marka má athugasemdir manna á Youtube, þá eru flestir hlustendur ánægðir með erindið. 

Big Sean hefur kynnt plötuna síðastliðna vikur með því að koma fram í bandarískum sjónvarpsþáttum eins og Ellen, SNL og The Daily Show. 

Tvö helstu lög plöturnar eru Moves og Bounce Back, en hið síðarnefnda var í 5. sæti á árslista Kronik yfir 25 bestu erlendu rapplög ársins 2016. Einnig hefur lagið Sunday Morning Jetpack vakið mikla lukku á meðal starfsmanna SKE. 

Hér fyrir neðan má hlýða á lögin Bounce Back og Moves. 

Auglýsing

læk

Instagram