Hnetusmjör, Birgir Hákon og Krabba Mane saman í nýju myndbandi: „Rútína“

Fréttir

Laugardaginn 30. mars síðastliðinn frumsýndu þeir Herra Hnetusmjör, Krabba Mane og Birgir Hákon myndband við lagið Rútína á Prikinu. 

Í dag (1. apríl) rataði myndbandið loks á Youtube (sjá hér að ofan). Takt lagsins smíðaði BNGRBOY og var leikstjórn myndbandsins í höndum Ingimars Elíassonar. 

Þá kemur leikarinn Magnús Jónsson við sögu í myndbandinu, meðal annarra, og fer hann með hlutverk blóðills dómara sem dæmir þríeykið í fangelsi fyrir neðangreindar sakir:

„Fyrir glæpi gegn menningu, almennri hljóðmengun og fyrir að spilla æsku landsins með þessu Hippidí Hoppi dæmi ég ykkur í fangelsi til að rotna þar um ókomna tíð.“

– Magnús Jónsson

Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir úr myndbandinu.

Auglýsing

læk

Instagram